|
|
Húsnæðisfélag SEM er
sjálfseignarstofnun stofnað 19. mars 1990. Markmið
Húsnæðisfélagsins SEM eru:
a) að byggja og reka félagslegt
íbúðarhúsnæði sem taki tillit til
sérþarfa hreyfihamlaðara, handa félögum
SEM,
b) að safna taka við og ráðstafa fé til
byggingar og reksturs félagslegra íbúða,
sameignar íbúðarhúsa, nauðsynlegra
aðstoða við íbúana eða annara skyldra
þjónustustarfsemi.
Árið 1989 var
ráðist í það stórvirki að byggja
20 íbúða blokk að Sléttuvegi 3 í
Reykjavík.
Húsnæðisstofnun ríkisins veitti lán til
50 ára fyrir 90% af byggingaverð hverrar
íbúðar, en 10% fjármagnaði SEM með
fjársöfnun.
Fyrstu íbúar fluttu inn í júní
1991 þessi íbúðafjöldi svaraði
þörfum SEM samtakanna við að koma
félagsmönnum sínum í hentugt
húsnæði. Árið 1995 var
þörf
á fleiri íbúðum og þá var
farið útí að kaupa notaðar
íbúðir á frjálsum markaði og breyta
eldhúsi og bað þannig að það hentaði
fyrir hreyfihamlaða. Til ársins 2001 voru þannig
keyptar 11 íbúðir og standsettar fyrir
hreyfihamlaða. Í þessum íbúðum var
10%
fjármagnaður af framkvæmdarsjóði
fatlaðra. Frá 1995 til 2001 var því hægt
að byggja eða kaupa
íbúðarhúsnæði fyrir fatlað
fólk og fá 90% stofnfé á 1% vöxtum til
50 ára og 10% af stofnfé sem styrk en þá var
Húsnæðisstofnun ríkisins og félagslega
kerfið lagt
niður.Í staðinn kom
Íúðalánasjóður. Í dag er
ekki möguleiki að fá
þessa hagstæðu fyrirgreiðslu þannig að
stofnun eins og H-SEM á engan möguleika að byggja
eða kaupa notað húsnæði á þeim
kjörum sem nú bjóðast til að
fjármagna kostnað.
|
|
|
|
|
|