Sár

Legusár eða þrýstingssár myndast þegar húð og vöðvavefur rofnar vegna stöðugs álags. Fólk með mænuskaða er mjög gjarnt á að fá þrýstingssár vegna þess að það nær ekki að hreyfa sig og er í sömu stellingunni lengi án þess að létta á álagi.

Staðir sem eru í mestri hættu eru setsvæði og svæði sem legið er á. Þegar mikill þrýstingur er á húð í langan tíma þá minnkar blóðflæði en frekar. Ef ekkert er gert fara vefir í húð og vöðvum fljótt að gefa sig og sár myndast innan frá.

Þar sem mænuskaði skerðir tilfinningu fyrir neðan skaða verður fólk oft ekki vart við þreytu í húð eða önnur merki um að álagssvæði þarfnist hvíldar. Besta ráðið við þessu er að fá reglubundna aðstoð við að skipta um stellingu. Góð næring og hreinlæti getur líka verið góð forvörn.

Önnur sár myndar oft líka þegar tilfinningalaust svæði verður fyrir áverka, hita, kulda eða mari sem mænuskaddaðir verða ekki varir við. Marblettir geta stundum orðið að sárum vegna lélegs blóðflæðis.

Sár á mænusködduðum einstaklingum getur tekið lengri tíma að gróa en venjulega vegna lélegs blóðflæðis.

Ef sár myndast á álagssvæðum skal tafarlaust leita til læknis.

SEM samtökin | Sléttuvegi 3 | 103 Reykjavík | Sími: 588 7470 | Fax: 588 7470 | Tölvupóstfang: sem@sem.is

Skrifstofan er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00 til 14:00