Spasmi
Mikið af ósjálráðum viðbrögðum er stjórnað af mænunni en haldið í skefjum af helanum. Þegar mænan skaddast hættir heilinn að halda viðbrögðunum í hófi. Ósjálráðu viðbrögðin geta orðið mjög ýkt með tímanum og valdið spasma.
Hjá sumum getur spasmi orðið mjög mikill og þá er helst beitt lyfjagjöf með töflum eða lyfjabrunni.
Mjög misjafnt getur verið hvort spasmi er vandamál eða góður. Spasmi getur aukið vöðvamassa og aukið blóðflæði í vöðva sem annars væru littlir og slappir. Sumir nota jafnvel spasma til þess að færa sig í og úr hjólastól eða jafnvel standa.