Húsnæði SEM

Húsnæðisfélag SEM er sjálfseignarstofnun stofnað 19. mars 1990. Markmið þess eru: 

    • Byggja og reka félagslegt íbúðarhúsnæði sem taki tillit til sérþarfa hreyfihamlaðara, handa félögum SEM.
    • Safna taka við og ráðstafa fé til byggingar og reksturs félagslegra íbúða, sameignar íbúðarhúsa, nauðsynlegra aðstoða við íbúana eða annara skyldra þjónustustarfsemi.

Árið 1989 var ráðist í það stórvirki að byggja 20 íbúða blokk að Sléttuvegi 3 í Reykjavík.

Húsnæðisstofnun ríkisins veitti lán til 50 ára fyrir 90% af byggingaverð hverrar íbúðar, en 10% fjármagnaði SEM með fjársöfnun.

Fyrstu íbúar fluttu inn í júní 1991 þessi íbúðafjöldi svaraði þörfum SEM samtakanna við að koma félagsmönnum sínum í hentugt húsnæði. Árið 1995 var þörf á fleiri íbúðum og þá var farið útí að kaupa notaðar íbúðir á frjálsum markaði og breyta eldhúsi og bað þannig að það hentaði fyrir hreyfihamlaða. Til ársins 2001 voru þannig keyptar 11 íbúðir og standsettar fyrir hreyfihamlaða. Í þessum íbúðum var 10% fjármagnað af framkvæmdarsjóði fatlaðra.

Frá 1995 til 2001 var því hægt að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði fyrir fatlað fólk og fá 90% stofnfé á 1% vöxtum til 50 ára og 10% af stofnfé sem styrk en þá var Húsnæðisstofnun ríkisins og félagslega kerfið lagt niður.Í staðinn kom Íúðalánasjóður. Í dag er ekki möguleiki að fá þessa hagstæðu fyrirgreiðslu þannig að stofnun eins og H-SEM á engan möguleika að byggja eða kaupa notað húsnæði á þeim kjörum sem nú bjóðast til að fjármagna kostnað.

 

SEM samtökin | Sléttuvegi 3 | 103 Reykjavík | Sími: 588 7470 | Fax: 588 7470 | Tölvupóstfang: sem@sem.is

Skrifstofan er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00 til 14:00