Sumarbústaðurinn Litli Skyggnir

bustadur1 litill

Sumarbústaður SEM samtakanna, Litli Skyggnir við Skyggnisveg 5 í Úthlíð í Bláskógabyggð í Biskupstungum var vígður sumarið 1993.

Sumarbústaðurinn var byggður með þarfir hjólastólanotenda í huga. Við hann er heitur pottur og lyftubúnaður. Hann er 50 fermetrar, auk svefnlofts, og rúmar 8 manns í gistingu. Í kringum bústaðinn er stór og góður pallur, einnig er gasgrill í bústaðnum.

bustadur3

Hann er leigður út allt árið, en félagsmenn ganga fyrir við sumarúthlutun. Hafa verður samband við skrifstofu vegna leigu á Litla Skyggni.

 

SEM samtökin | Sléttuvegi 3 | 103 Reykjavík | Sími: 588 7470 | Fax: 588 7470 | Tölvupóstfang: sem@sem.is

Skrifstofan er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00 til 14:00