Samtökin

Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðra, skammstafað SEM voru stofnuð árið 1980 af nokkrum einstaklingum sem höfðu orðið fyrir mænuskaða af völdum slysa.

Markmið félagsins er að efla samhjálp mænuskaddaðra, vinna að auknum réttindum þeirra og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu, eins og segir í lögum félagsins.

Þá var einnig stofnuð sjálfseignarstofnun sem heitir Húsnæðisfélag SEM og hefur nú byggt sérhannaða íbúðarblokk að Sléttuvegi 3 með dyggilegum stuðningi margra einstaklinga og fyrirtækja.

Einnig hefur H-SEM keypt nokkrar íbúðir úti í bæ sem þeir leigja til félagsmanna sinna. 

SEM samtökin | Sléttuvegi 3 | 103 Reykjavík | Sími: 588 7470 | Fax: 588 7470 | Tölvupóstfang: sem@sem.is

Skrifstofan er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00 til 14:00