Samþykktir
1 gr.
Félagið heitir Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðra (skammstafað SEM). Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík, starfssvæði er landið allt.
2gr.
Markmið félagsins eru að efla samhjálp mænuskaddaðra, vinna að auknum réttindum þeirra og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu, svo sem eð því að:
a) Halda áfram aðvinna að því að komið verði upp húsnæði við hæfi mænuskaddaðra.
b) Styðja félagsmenn sína til að afla sér menntunar, bóklegrar eða verklegar.
c) Aðstoða félagsmenn við að leita sér starfa við hæfi
d) Stuðla að því að félagsmenn geti sjálfir komið upp atvinnurekstri.
e) Efla félagsleg kynni og samheldni félagsmanna
f) Vekja athygli sveitarstjórna, ríkisvaldsins, obinberra aðila og almennings á því er betur má fara í húsnæðismálum, atvinnumálum, starfsþjálfun, ferlimálum og öðrum aðbúnaði og réttindamálum félagsmanna.
g) Vinna að og efla forvarnarstarf.
3. gr.
Félagsmaður getur hver orðið sem:
a) Félagsmaður getur sá orðið sem skaddast á mænu við starf eða leik og hlotið viðurkennda endurhæfingu.
b) Verði ágreiningur um aðild að félaginu skal boða til félagsfundar innan fjögurra vikna og þess getið í fundarboði. Þetta getur átt við hvort heldur sem er að stjórn hefur synjað um aðild eða að stjórn samþykkt aðild en félagsmanni finnst ólögmæt. Niðurstaða félagsfundar er bindandi.
c) Greiðir félagsgjald eins og það er ákveðið á aðalfundi ár hvert. Þó er stjórn félagsins heimilt að fella niður skyldur einstakra félagsmanna til greiðslu árgjalds eitt ár í senn ef fjárhagsaðstæður viðkomandi krefjast þess.
d) Ævifélagi getur hver sá orðið sem greiðir tvítugfalt félagsgjald í eitt skipti fyrir öll.
e) Aukafélagi getur hver sá orðið sem vill vinna að markmiðum félagsins. Aukafélagi hefur eingöngu málfrelsi og tillögurétt. Aukafélagi er kjörgengur í nefndir og ráð félagsins en ekki í aðalstjórn eða á þing sem félagið sendir fulltrúa á.
f) Félagsmanni má víkja úr félaginu með fundarsamþykkt, ef hann verður sannur að sök um að hafa unnið gegn hagsmunum þess eða markmiðum. Máli sínu getur félagsmaður þó ávallt skotið til næsta félagsfundar sem fellir fullnaðarúrskurð.
4. gr.
Félagið getur orðið aðili að öllum þeim heildarsamtökum sem vinna að framgangi baráttu- og hagsmunamálum félagsins á einn eða annan hátt, enda sé slík aðild samþykkt á almennum félagsfundi sem boðaður er bréflega með a.m.k. viku fyrirvara. Í fundarboði skal koma fram dagskrá slíks fundar. Á sama hátt getur félagið orðið félagi að stofnunum , fyrirtækjum eða félgsskap sem vinnur að einstökum hagsmunarmálum mænuskaddaðra.
5. gr.
Félagsfundur er lögmætur ef hann hefur verið boðaður með þriggja daga fyrirvara. Einnig teljast það vera fullnægjandi fundarboð ef tilkynnt er um næsta félagsfund á félagsfundi þar sem meira en 40% skráðra félagsmanna eru mættir.
6. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir aðalfund til samþykktar.
7. gr.
Á aðalfundi skal kjósa stjórn SEM , stjórn H.SEM , fjáröflunarnefnd, ritnefnd og orlofshúsanefnd. Að tillögu stjórnar getur aðalfundur ákveðið hvaða fleiri fastanefndir skuli kosið í og kýs þá fundurinn þær. Allar kostningar skulu bundnar við uppástungur en vera skriflegar ef um fleiri en eina uppástungu er að ræða. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðum kostninga. Falli atkvæði jafnt skal hlutkesti ráða. Eingöngu skuldlausir félagsmenn á árgjaldi starfsárs félagsins hafa athvæðisrétt í kostningum en skuldugir félagsmenn hafa málfrelsi og tillögurétt. Fjáröflunarnefnd og ritnefnd heyra undir stjórn SEM og geta engar bindandi ákvarðanir tekið nema stjórn SEM eða félagsfundur hafi samþykkt þær.
8. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Formaður er kosinn á hverjum aðalfundi, en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára, þannig að annað árið sé kosinn ritari og einn meðstjórnandi en hitt árið gjaldkeri og einn meðstjórnandi.
9. gr.
Aðalfundur kýs fimm fulltrúa til setu í stjórn Húsnæðisfélags SEM og þrjá til vara. Kjörtímabil er tvö ár. Stjórn H-SEM skiptir með sér verkum. Annað árið skal kjósa tvoaðalmenn og tvo til vara. Hitt árið þrjá aðalmenn og einn til vara. Formaður SEM skal ávallt vera jafnframt varaformaður H-SEM. Stjórn H-SEM skal starfa eftir skipulagsskrá húsnæðisfélagsins. A.m.k. einn stjórnarmaður í H-SEM skal vera félagsmaður sem ekki býr í húsnæði í eigu H-SEM.
10. gr.
Aðalfund á að halda fyrir lok júní hvert ár. Aðalfund skal boða bréflega með a.m.k. sjö daga fyrirvara. Fastir liðir á dagskrá aðalfundar eru:
a) Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
b) Skýrsla stjórnar H-SEM.
c) Skýrslur annara nefnda eða fulltrúa félagsins.
d) Endurskoðaðir reikningar félagsins.
e) Reikningar H-SEM lagðir fram til kynningar .
f) Árgjald félagsins ákveðið.
g) Lagabreytingar.
h) Kosning stjórnarmanna fyrir þá sem lokið hafa setu í stjórn.
i) Kosning fulltrúa í H-SEM fyrir þá sem lokið hafa kjörtímabili.
j) Kosning fulltrúa í aðastjórn Öbi og 2 varamenn.
k) Kosning í fulltrúaráð Öbi 2 fulltrúar og 2 til vara.
l) Kosning endurskoðenda.
m) Kosning í orlofshúsanefnd.
n) Kosning fjáröflunarnefndar.
o) Kosning ritnefndar.
p) Kosning annara nefnda.
q) Önnur mál.
r) Starfstilhögun nýkjörinnar stjórnar.
11. gr.
Stjórn félagsins fer með málefni félagsins á milli félagsfunda. Til þess að skuldbinda félagið þarf undirskrift tveggja stjórnarmanna þess. Til allra meiri háttar ákvarðana um rekstur eða starfsemi félagsins þarf þó samþykki félagsfundar. Stjórn félagsins er heimilt að ráða starfsmenn til fastra eða tímabundinna verkefna. Sé um fast starf eða starf sem útheimtir mikinn launakostnað skal það lagt fyrir félagsfund til samþykkis. Nefndum félagsins ber að leita samþykkis stjórnar SEM vegna hverskonar ráðningar eða ráðningasamninga. Hvort sem er vegna tímabundinna verkefna eða til langframa.
12. gr.
Til þess að breyta lögum þessum þarf að ræða og samþykkja breytingartillögurnar á tveimur fundum í röð og verður annar þeirra að vera aðalfundur. Breytingatillögurnar verður að auglýsa sérstaklega fyrir síðarifundinn. Til venjulegra lagabreytinga þarf einfaldan meirihluta atkvæða en til að slíta félaginu eða sameina það öðrum félagsskap þarf 2/3 hluta atkvæða á báðum fundum sem taka slíka tillögu til meðferðar.
13. gr.
Hafi verið samþykkt að slíta félaginu skulu eignir þess ef einhverjar eru afhentar til varðveislu Öryrkjabandalagi Íslands er skal annast þær þar til annað félag með sama starfsgrundvelli er stofnað. Við stofnun slíks félags er skylt að afhenda eignirnar til fullra afnota.
14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt í þessari mynd á aðalfundi maí 2007.
Jón Sigurðsson Jón Eiríksson.